1 · Tengiliður

2 · Félagið

Skref 1 · Skoðunaraðgangur að netbanka

1

Opnaðu netbanka fyrirtækja hjá Arion banka og skráðu þig inn fyrir hönd félagsins.
2

Farðu í Stillingar → Aðgangsstýringu og veldu að stofna nýjan notanda / veita aðgang.
3

Sláðu inn kennitöluna 070267-4389 (Arnar Þór Árnason) og veldu skoðunaraðgang sem nær yfir alla reikninga og kort félagsins.
4

Ef eitthvað vefst fyrir þér aðstoðar þjónustuver Arion í síma 444 7000 — biddu um að ofangreindri kennitölu verði veittur skoðunaraðgangur.

1

Opnaðu netbanka fyrirtækja hjá Íslandsbanka og skráðu þig inn fyrir hönd félagsins.
2

Veldu Aðgangsstýringu (flipinn fyrir ofan „Stillingar og tól“) og smelltu á borðann „Stofna notanda“ á miðri síðunni.
3

Sláðu inn kennitöluna 070267-4389 (Arnar Þór Árnason) — notendanafn stofnast sjálfkrafa og lykilorð berst í rafræn skjöl. Veldu skoðunaraðgang yfir alla reikninga og kort.
4

Þjónustuver Íslandsbanka aðstoðar í síma 440 4000 ef þarf.

1

Félagið þarf að vera með netbanka fyrirtækja hjá Landsbankanum. Ef svo er ekki, hafðu samband við bankann í síma 410 4000 og óskaðu eftir honum.
2

Sæktu um B2B-beintengingu við bókhald — það er gert í netbanka fyrirtækja eða með því að hafa samband við fyrirtækjaþjónustu bankans (410 4000 / landsbankinn@landsbankinn.is). Tengingin er gjaldfrjáls af hálfu bankans.
3

Biddu jafnframt um að Arnari Þór Árnasyni, kt. 070267-4389, verði veittur skoðunaraðgangur að netbanka félagsins yfir alla reikninga og kort.
4

Láttu okkur vita þegar B2B er virkt — við sjáum um tenginguna við bókhaldskerfið.

1

Hafðu samband við viðskiptastjóra þinn hjá Kviku eða þjónustuver í síma 540 3200.
2

Biddu um að Arnari Þór Árnasyni, kt. 070267-4389, verði veittur skoðunaraðgangur að reikningum félagsins.
3

Gættu þess að aðgangurinn nái yfir alla reikninga og kort félagsins.

Skref 2 · Umboð á Ísland.is

Umboðið gerir okkur kleift að nálgast nauðsynleg gögn félagsins hjá hinu opinbera.

1

Skráðu þig inn á island.is með rafrænum skilríkjum og opnaðu Mínar síður.
2

Smelltu á nafnið þitt efst í hægra horninu og skiptu yfir á félagið.
3

Veldu Aðgangsstýringu í valmyndinni og smelltu á Nýtt umboð.
4

Sláðu inn kennitöluna 070267-4389 (Arnar Þór Árnason) og settu dagsetninguna nokkur ár fram í tímann (t.d. 5 ár).
5

Hakaðu við eftirfarandi réttindi:
Pósthólf — skoða og opna rafræn skjöl
Um fyrirtæki — upplýsingar úr fyrirtækjaskrá
Eignir ásamt öllum undirliðum (vinnuvélar, hugverkaréttindi, fasteignir, ökutæki)
Fjármál: Staða og hreyfingar · Greiðsluáætlun · Launamál
Aðgangsstýring
Ekki þarf að haka við „Umsóknir“.
6

Smelltu á „Skrá nýtt umboð“ — og umboðið er komið á.

Skref 3 · Dokobit — ekkert að gera strax. Innan skamms færðu sent umboð til gagnaöflunar til rafrænnar undirritunar í gegnum Dokobit. Tilkynningin berst í tölvupósti — þú undirritar með rafrænum skilríkjum og þá er allt klárt okkar megin.

Gott að vita um ehf.: Hlutafé (lágmark 500.000 kr.) þarf að greiða við stofnun og skráningargjald fyrirtækjaskrár er samkvæmt gjaldskrá Skattsins (nú 140.500 kr.). Aðalbókarinn útbýr stofnskjölin (stofngerð, samþykktir, tilkynningar til fyrirtækjaskrár og um raunverulega eigendur) og sendir til rafrænnar undirritunar. Afgreiðsla tekur alla jafna um 10–12 virka daga.

Gott að vita um slf.: Samlagsfélag byggist á félagssamningi tveggja eða fleiri aðila þar sem a.m.k. einn ber beina og ótakmarkaða ábyrgð á skuldbindingum félagsins og a.m.k. einn ábyrgð takmarkaða við framlag sitt. Ekkert lágmarksframlag er áskilið. Skráningargjald fyrirtækjaskrár er samkvæmt gjaldskrá Skattsins (nú 95.500 kr.). Athugið: hjón ein sér (eða með ófjárráða börnum sínum) geta ekki stofnað samlagsfélag sem sjálfstæðan skattaðila. Aðalbókarinn útbýr félagssamning og tilkynningar og sendir til rafrænnar undirritunar.

Ekkert mál. Lýstu starfseminni og áformunum hér að ofan eins vel og þú getur — við förum yfir kosti og galla félagaformanna (ehf., slf. o.fl.) með þér, m.a. út frá ábyrgð, skattlagningu og kostnaði, áður en ákvörðun er tekin.

3 · Annað sem gott er að vita