Samtal um bókhald
Hafiði velt fyrir ykkur hvernig samtal um bókhald er?
Við vorum einmitt að ræða það um daginn hér á skrifstofunni því þarfir allra okkar viðskiptavina eru hinar sömu eða stöðugleiki og að geta gengið að því að skil til hins opinbera séu rétt og á réttum tíma. Þetta er ekki flókið.
Viðskiptavinur: ,,Sæll, geturðu tekið að þér bókhaldið hjá mér?”
Aðalbókarinn; ,,Já að sjálfsögðu, hvernig rekstur ertu með?”
Svo hefjum við samtal um bókhald sem innifelur í sér þarfir og áskoranir hins tilvonandi viðskiptavinar. Eftir á sendum við tilboð þar sem við sundurliðum hvernig við sérsníðum bókhaldsþjónustuna að viðkomandi.
Grunn bókhaldsþjónusta Aðalbókarans
- færa bókhaldið
- senda inn VSK skýrslur
- útbúa launaseðla
- senda inn staðgreiðslu og launaskilagreinar
- gera og senda inn ársreikning ásamt að skila skattframtali
- sjá um öll samskipti við RSK
- fast verð og enga aukareikninga
Framkvæmd bókhaldsþjónustu Aðalbókarans
- Sækja bókhaldsgögn til viðskiptavina
- móttaka skönnuð gögn
- sækja rafræn skjöl í banka
- sækja rafræna reikninga viðskiptavina
Það er alltaf ánægjulegt að heyra hve við getum einfaldað vinnuna fyrir viðskiptavini okkar með traustu, öruggu bókhaldi. Því bókari verður aldrei úreltur. Við erum skýr í okkar afstöðu sem auðveldar bæði skilning og árangur allra enda ganga viðskiptavinir að okkur vísum í sínum rekstri á föstu verði án allra aukareikninga.
Viltu trausta, örugga bókhaldsþjónustu? Sendu okkur fyrirspurn hér og við höfum samband um leið og við lítum upp úr bókhaldinu.