,

Skattframtal fyrirtækja 2026

Skattframtal fyrirtækja 2026: verkflæði frá janúar til apríl og maí-yfirferð

Skattframtal fyrirtækja 2026 þarf ekki að vera áhlaupaverk í lok vors. Þegar skil dragast eða yfirferð tefst er ástæðan sjaldnast framtalsformið sjálft; hún er oftar sú að bókhaldið hefur ekki verið leitt að þeirri stöðu að það gefi skýra mynd af rekstrinum þegar á reynir. Þá fer orka í að rekja frávik og laga gamlar skekkjur í stað þess að staðfesta niðurstöðu, rökstyðja helstu liði og ganga frá skilum með öryggi.

Góð nálgun er að líta á framtalsskil sem framhald af árslokavinnu – ekki sem sérverkefni sem hefst þegar opnað er fyrir skil. Ef þú vilt setja skýran grunn í upphafi árs er gagnlegt að byrja á Áramótalokun í bókhaldi og tryggja að helstu afstemmingar og tímabilaskiptingar séu unnar með sama gæðaviðmiði og þú gerir kröfu um í öðrum rekstrarupplýsingum.

Samkvæmt skattadagatalinu opnar fyrir skil á framtali lögaðila í lok janúar og lokadagur er í lok maí. Það er nægur tími – ef hann er nýttur með samfelldu verkflæði í stað þess að safna upp óvissu fram á síðustu vikur.


Janúar–apríl: verkflæði fyrir skattframtal fyrirtækja 2026

Janúar til apríl ætti að vera samfelldur undirbúningur þar sem markmiðið er tvíþætt: annars vegar að byggja upp traust á lykiltölum og hins vegar að minnka líkurnar á óþægilegum uppgötvunum í maí.

Í janúar skiptir mestu að bókhaldið verði „afstemmt“ í raunverulegum skilningi orðsins. Banki og kort þurfa að stemma, óútskýrðar færslur að hverfa úr kerfinu og kröfur og skuldir að endurspegla stöðuna eins og hún er – ekki eins og hún átti að vera. Hér bætist gjarnan við óbókaður kostnaður sem tilheyrir fyrra ári; hann á ekki að koma í ljós þegar farið er að ganga frá framtalinu, heldur á hann að vera leystur sem hluti af árslokafrágangi.

Samhliða þessu þarf virðisaukaskattur að „tala“ við bókhaldið. Þar hjálpar skýr uppsetning á reikningalyklum, vönduð skjalavinnsla og rútína sem tryggir að meðferð inn- og útskatts sé samkvæm milli tímabila. Ef þörf er á að festa vinnulag í sessi er eðlilegt að vísa í VSK-uppgjör og ganga úr skugga um að verkferlar og ábyrgð innan fyrirtækisins séu skýr. Þetta dregur verulega úr líkum á því að yfirferð í maí fari í að rekja kóða- og tímabilamun, og styður jafnframt við skattframtal fyrirtækja 2026 sem rökstudd samantekt á rekstrarárinu.

Í febrúar og mars skilar einföld, regluleg rútína oft mestum árangri. Hún þarf ekki að vera flókin: stutt afstemming á banka og kortum, yfirferð á opnum kröfum og skuldum og staðfesting á því að frávik safnist ekki upp. Markmiðið er ekki að „gera allt“ í hverri viku, heldur að tryggja að ekkert verði óviðráðanlegt.

Í apríl er svo réttur tími til að loka stærri spurningum sem hafa áhrif á niðurstöðu: tímabilaskiptingum, óvenjulegum liðum, leiðréttingum sem byggja á nýjum upplýsingum og þeim atriðum sem skýra sveiflur milli ára. Þar með ertu kominn með rekstrarsögu sem stenst eðlilega faglega yfirferð – áður en þú ferð í formlega skilavinnu.


Maí: fagleg yfirferð og skil

Í maí á áherslan að færast frá „hreinsun“ yfir í staðfestingu. Þá er markmiðið að ljúka skattframtali fyrirtækja 2026 á grundvelli talna sem standast afstemmingar og skýringa sem standast rökræna skoðun.

Gagnlegt er að fara markvisst yfir nokkra lykilþætti:

  • Að helstu afstemmingar séu í lagi: banki/kort, kröfur/skuldir, lán og vextir, og laun og launatengd gjöld.
  • Að samræmi sé milli bókhalds og virðisaukaskatts: að uppgjör, lykilreikningar og tímabil skýri sömu mynd og frávik séu rökstudd.
  • Að gögn sem styðja stærstu liði séu aðgengileg: reikningar, samningar, afstemmingar og stutt minnisblað um helstu frávik eða matsatriði.
  • Að „stóru liðin“ séu yfirfarin sérstaklega: tímabilaskiptingar, óvenjulegir liðir og það sem skýrir breytingar milli ára.

Ef félagið er jafnframt skilaskylt með ársreikning er eðlilegt að samræma maí-yfirferðina við þá mynd líka, þannig að sami rökstuðningur og sömu afstemmingar styðji bæði skilaferli.


Næsta skref

Ef þú vilt vinna þetta skipulega er skynsamlegt að setja þetta upp sem stuttan gátlista fyrir janúar–apríl og sérstaka maí-yfirferð. Með því verður skattframtal fyrirtækja 2026 fyrirsjáanlegt verkefni – ekki síðbúin leit að frávikum.

, ,

Áramótalokun í bókhaldi: sönn niðurstaða

Áramótalokun í bókhaldi er ekki “verkefni sem þarf að klára”. Hún er ákvörðun um hvaða veruleika þú ætlar að byggja næsta ár á.

Rekstrarfólk með reynslu þarf ekki að fá útskýrt hvað bankinn er eða hvað VSK þýðir. Það sem er óþægilegt — og dýrt — er þegar tölurnar líta vel út í desember en verða svo óþægilegar í febrúar, þegar ársreikningur, lánalínur, verðlagning og eigendaákvarðanir rekast á raunveruleikann.

Áramótavinnan snúast því um eitt: að tryggja að rekstrarniðurstaðan sé sönn — ekki falleg.


1) Bankinn er ekki sannleikurinn – en hann afhjúpar lygi strax

Það er freistandi að líta á bankastöðuna sem “stöðu fyrirtækisins”. Hún er aðeins sjóðstaða. Hún segir ekki:

  • hvað er innheimtanlegt,
  • hvað er skuldbundið en óbókað,
  • og hvað tilheyrir næsta ári.

Áramótalokun sem “stemmir” á pappír en er full af ógreindum færslum er ekki lokun. Hún er frestun.


2) Kröfur í árslok: eign eða sjálfsblekking

Það er magnað hvað margir treysta bókhaldi sem heldur dauðum kröfum á lífi. Kröfur eru ekki „von“. Þær eru faglegt mat á því hvað er raunhæft að innheimta.

Áramótin eru rétti tíminn til að taka faglega afstöðu:

  • hvaða viðskiptavinir eru innan ramma,
  • hvaða kröfur eiga að fara í formlegt innheimtuferli,
  • og hvaða kröfur eiga einfaldlega að fara út úr bókhaldinu.

Þetta er ekki “neikvæðni”. Þetta er stjórnun.


3) Óbókaður desemberkostnaður: klassíski falski hagnaðurinn

Það er hægt að „búa til“ hagnað með því einu að gleyma reikningum sem berast í janúar. Það er ekki hagnaður — það er tímasetningarvilla.

Algengasta birtingarmyndin:

  • vinna eða þjónusta fer fram í desember,
  • reikningur kemur í janúar,
  • rekstrarniðurstaða ársins verður of góð,
  • og nýtt ár byrjar með ósanngjörnum kostnaðarhalla.

Ef þú ætlar að bera saman ár við ár — og taka ákvarðanir út frá þeim samanburði — þá þarf desember að innihalda desember. Þetta er kjarninn í árslokauppgjöri í bókhaldi: rétt tímabil, rétt niðurstaða.


4) Árslokauppgjör: fyrirframgreitt vs. áfallið

Hér býr góð bókhaldsvinna til gæði. Ekki með snyrtilegum færslum, heldur með réttri mynd:

  • rétt tímabil,
  • raunhæf framlegð,
  • og skýr rekstrargrundvöllur fyrir verðlagningu.

Þetta er ekki að „fíflast með færslur“. Þetta er að stilla mælitækið.


5) Laun og tengd gjöld: villur hér eru alltaf ljótar – og alltaf tímafrekar

Laun er oft stærsti kostnaðarliðurinn og samt er hann oft með lausum endum:

  • áfallin (ógreiddar skuldir),

  • orlof / yfirvinna / frávik,

  • tímabilaskipting sem skekkir rekstrarmynd.

Áramótin eru rétti tíminn til að láta launaliðinn vera “borðleggjandi”. Ekki “nálægt”. Í árslokabókhaldi borgar sig að hreinsa frávik áður en þau verða leiðréttingar í febrúar.


6) VSK í árslokauppgjöri: minni óreiða, ekki meiri vinna

VSK-vandamál koma sjaldan sem eitt stórt högg. Þau safnast upp í litlum, endurteknum atriðum:

  • rangur kóði,
  • vantar skjal,
  • óljós meðhöndlun á ákveðnum liðum.

Áramótin eru besti tíminn til að hreinsa þetta upp svo næsta ár verði einfaldara – ekki bara “rétt” (nánar um VSK).


7) Eignir, afskriftir og “rekstrarkaup”: þetta snýst um skýrleika, ekki bókhaldsnördaskap

Þegar fjárfestingar enda í rekstri (eða rekstrarkaup fara í eignir) verður reksturinn ólæsilegur. Og þegar reksturinn er ólæsilegur, fara ákvarðanir að byggjast á tilfinningu í stað staðreynda.

Afskriftir eru ekki bara “færsla”. Þær eru leið til að segja sannleikann um notkun og slit.


Það sem góð áramótalokun í bókhaldi gefur þér

Ef þetta er gert rétt færðu:

  • rekstrarniðurstöðu sem þú getur treyst,
  • samanburð sem segir eitthvað,
  • og grunn sem gerir nýtt ár léttara — ekki þyngra.

Og umfram allt færðu það sem reyndir stjórnendur sækjast raunverulega eftir: fyrirsjáanleika í ákvarðanatöku.


Ef þú vilt gera þetta hratt og örugglega

Hjá Aðalbókaranum nálgumst við áramótalokun þannig að hún verði:

  • hrein (engin óútskýrð frávik),

  • tímabilsrétt (desember er desember),

  • stjórnunarhæf (tölurnar nýtast — ekki bara „standast“).

, ,

Launavinnsla í árstíðabundnum rekstri

Í ferðaþjónustu, veitingarekstri og öðrum árstíðabundnum greinum breytist fjöldi starfsmanna hratt. Ef launaferlið fylgir breytingunum ekki eftir koma upp villur sem valdið geta ágreiningi og óþarfa kostnaði.

Markmiðið á að vera skýrt: launavinnslan þarf að þola sveiflurnar og ekki valda truflun í rekstri.


Helstu vandamál sem koma upp

Í verkefnum hjá Aðalbókaranum sjáum við aftur og aftur sömu punkta:

  • Ófullnægjandi gögn við ráðningu
    Starfsmaður byrjar áður en kennitala, bankaupplýsingar, skattkort og samningur liggja fyrir. Þetta skapar vandamál við fyrstu launagreiðslu og getur tafið greiðslur.
  • Tímaskráning úr mörgum áttum
    Tímar koma úr vaktaplani, kassa, appi og skilaboðum. Ekkert eitt „rétt“ skjal. Þegar upplýsingar berast úr mörgum áttum eykst hætta á innsláttarvillum og ósamræmi.
  • Flókin vaktakerfi og yfirvinna
    Starfsfólk í veitingum og ferðaþjónustu vinnur yfirleitt vaktavinnu. Kvöld- og helgarálag, mismunandi launaflokkar og tilfallandi fastir launaliðir auka villuhættu. Hver villa í útreikningi á yfirvinnu eða álagi getur skapað kostnað eða ágreining með tilheyrandi vantrausti.
  • Mikil starfsmannavelta
    Stöðug ráðningar og starfslok gera orlofs- og lokauppgjör viðkvæm og tímafrek.

Lágmarksferli sem þarf að vera til staðar

Til að launakerfi virki í árstíðabundnum rekstri þarf skýrt ferli frá ráðningu til lokauppgjörs:

  1. Ráðning
    • Staðlað eyðublað fyrir nýja starfsmenn.
    • Enginn fer á vakt án kennitölu, bankareiknings, skattkorts og undirritaðs samnings.
  2. Tímaskráning
    • Ein samþykkt leið fyrir allt starfsfólk (app, kerfi eða kassi).
    • Skilafrestur skilgreindur – t.d. daglega eða vikulega.
    • Tengsl við launakerfi til að koma í veg fyrir innsláttarvillur
  3. Úrvinnsla launa
    • Launaflokkar skilgreindir í kerfinu (dagvinna, yfirvinna, álag, orlof o.s.frv.).
    • Sjálfvirkar athuganir á frávikum (óvenju háar tímatalningar, óeðlileg yfirvinna o.fl.).
    • Nákvæmir greiningar á mismunandi launatöxtum
  4. Samþykkt launa
    • Yfirlit til rekstrarstjóra/eiganda með heildarlaunum, yfirvinnu og frávikum.
    • Skráð samþykkt áður en laun eru keyrð.
    • Tækifæri til að leiðrétta villur áður en greiðslur fara fram
  5. Lokauppgjör og skilagreinar
    • Sjálfvirk skil á lífeyri, stéttarfélögum og sköttum.
    • Listi yfir starfsmenn sem hætta á tímabilinu og staða lokauppgjörs.

Mælaborð fyrir stjórnendur

Til að fylgjast með launakostnaði á álagstímum er gagnlegt að hafa einfalt mælaborð, t.d. mánaðarlega:

  • heildarlaun og launatengd gjöld,
  • yfirvinnustundir og hlutfall yfirvinnu,
  • fjöldi starfsmanna á mánuði,
  • launakostnaður sem hlutfall af veltu.

Slíkt yfirlit sýnir fljótt hvort launakostnaður sé að fara úr hófi á háannatíma og gerir kleift að bregðast við áður en vandamál verða of stór.


Hvenær er skynsamlegt að útvista?

Úthýsing á launavinnslu er sérstaklega áhugaverð þegar:

  • starfsmannafjöldi sveiflast verulega milli mánaða,
  • launakostnaður er stór hluti rekstrarins,
  • og launavinnslan er í höndum fólks sem einnig ber ábyrgð á daglegum rekstri.

Þá getur verið hagkvæmt að færa launavinnslu til sérfræðinga sem fylgjast daglega með kjarasamningum, lögum og skilum til yfirvalda, en skila stjórnendum reglulegum, skýrum yfirlitum.


Samantekt

Árstíðabundinn rekstur þarf launaferli sem er skýrt, endurtekið og óháð einstaklingsþekkingu.
Með:

  • einni tímaskráningarleið,
  • staðluðum ráðningarferlum,
  • formlegri samþykkt launa
  • og reglulegu mælaborði,

má draga verulega úr áhættu, spara tíma og bæta fyrirsjáanleika launakostnaðar.

Aðalbókarinn býður upp á faglega launavinnslu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Við höfum umsjón með launum, sköttum, skilagreinum og samskiptum við yfirvöld svo rekstraraðilar geti einbeitt sér að viðskiptavinum og vexti.

Ef þú vilt vita hvort við getum hjálpað þér með launavinnslu, hringdu eða sendu skilaboð. Við byrjum á stuttu samtali þar sem við komumst að því hvort við getum bætt ferlið hjá þér.

,

Launavinnsla: Stærsti tímaþjófur rekstrarins

Flestir eigendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja stofna ekki fyrirtæki til að sitja yfir launatöflum og skilagreinum. Samt endar of mikill hluti mánaðarins oft í að elta vinnutíma, fylla út launaseðla, skila gögnum og passa uppá að ekkert fari úrskeiðis.

Launavinnsla er nauðsynleg – en hún á ekki að éta upp allan tímann þinn.

Í þessari grein förum við yfir hvað launavinnsla raunverulega felur í sér, af hverju hún er svona tímafrek og hvernig þú getur losað um 5–10 tíma á mánuði (og stundum meira) án þess að fórna öryggi eða gæðum.


Hvað er launavinnsla í raun?

Margir hugsa um „laun“ sem eina útborgun á mánuði – en launavinnsla er mun meira en það. Í raun er þetta heilt ferli:

  1. Safna gögnum

    • vinnutími, vaktaáætlanir, yfirvinna, orlof, veikindi

    • nýir starfsmenn, starfsmenn að hætta, breytingar á starfshlutföllum

  2. Reikna laun

    • dagvinnu, kvöld- og helgarálag

    • yfirvinnu, bónusa, dagpeninga o.s.frv.

  3. Draga frá og reikna gjöld

    • staðgreiðslu, lífeyrissjóð, viðbótarlífeyri

    • stéttarfélög, félagsgjöld, tryggingagjald, orlofsuppbót o.fl.

  4. Skila og skrá

    • greiða laun

    • senda launaseðla

    • skila skilagreinum og öðrum gögnum til réttra aðila

    • samræma við bókhald og banka

Hljómar einfalt á blaði – en í raun er þetta margra þrepa vinna, með stífum skilafrestum og litlu svigrúmi fyrir mistök.


Af hverju er launavinnsla svona tímafrek?

1. Gögnin koma úr öllum áttum

Starfsmenn skrá vinnutíma á ólíkum stöðum – í skráningarkerfi, í Excel, á pappír, í Messenger eða jafnvel „munnlega“. Það þarf að:

  • reka á eftir skráningum

  • leiðrétta rangar skráningar

  • passa að orlof, veikindi og frí séu rétt skráð

Þetta er sjaldnast einfalt eða sjálfvirkt ferli – það þarf stöðugt að laga og elta upp á smáatriði.

2. Reglurnar eru flóknar og breytast

Launataxtar, kjarasamningar, skattar, lífeyrissjóðir og reglur um orlof, veikindi og orlofsuppbætur eru oft flókin og síbreytileg. Fyrir eiganda eða stjórnanda sem þarf jafnframt að fylgjast með rekstri, sölu og mannauði er erfitt að vera líka sérfræðingur í öllum þessum reglum.

3. Skilafrestir bíða ekki

Laun verða að fara út á réttum degi. Sköttum og gjöldum þarf að skila á réttum tíma. Skilafrestir hjá Skattinum, lífeyrissjóðum og öðrum aðilum eru ekki sveigjanlegir:

  • missir þú af skilafresti → mögulegt álag og vesen

  • verður villa í launum → það grefur undan trausti og þú eyðir tíma í útskýringar og leiðréttingar

Tíminn fer ekki bara í vinnuna sjálfa heldur líka í að slökkva elda þegar eitthvað klikkar.


„Tími er peningar“ – hvað kostar launavinnslan þig í alvöru?

Segjum að þú eyðir 8 klukkustundum á mánuði í laun og skilagreinar. Það er einn heill vinnudagur. Fyrir marga eigendur er það:

  • tími sem gæti farið í sölu, þjónustu eða útivinnu

  • tími sem gæti farið í að þjálfa starfsfólk

  • tími sem gæti farið í að byggja upp viðskiptasambönd

Ef þú metur tíma þinn á t.d. 15.000–25.000 kr. á klukkustund, þá er þessi „launadagur“ fljótt kominn í verulegar upphæðir á ári – án þess að taka með:

  • stressið þegar það styttist í útborgun

  • áhættuna af villum og álagi

  • kostnaðinn af því að vera alltaf „rétt svo“ búinn að þessu.


Algeng merki um að launavinnslan sé farin að stjórna þér (en ekki öfugt)

Þú gætir þekkt þig í einhverju af þessu:

  • Þú tekur reglulega launadaga á kvöldin eða um helgar til að ná að klára í tíma.

  • Þú ert oft að velta fyrir þér: „Er þetta örugglega rétt? Á þessi ekki að fá meira/orlof/yfirvinnu?“

  • Þú ert farin(n) að hafa áhyggjur af því að gleyma skilafrestum eða greiðslum.

  • Enginn annar í fyrirtækinu „getur“ sinnt launavinnslunni – allt veltur á þér.

Ef þetta hljómar kunnuglega, þá er launavinnslan orðin meiri tímaþjófur en hún þarf að vera.


Hvernig geta eigendur og stjórnendur einfaldað launavinnslu – án þess að taka upp nýtt kerfi strax?

Þú þarft ekki endilega að fjárfesta strax í flóknu launakerfi til að ná ávinningi. Fyrstu skrefin snúast um:

1. Skýra ferlið

Skrifaðu einfalt ferli, t.d.:

  1. Starfsmenn skrá vinnutíma hér (og hver ber ábyrgð).

  2. Yfirmaður staðfestir fyrir X. dag mánaðarins.

  3. Laun eru unnin þennan dag.

  4. Skilagreinum og greiðslum er skilað svona og svona.

Það hljómar einfalt – en margir hafa ferlið bara í hausnum. Þegar það er á blaði verður miklu auðveldara að:

  • útskýra fyrir nýjum starfsmönnum

  • fela öðrum hluta ferlisins

  • sjá hvar tíminn tapast í dag

2. Taka út „handavinnu“ þar sem hægt er

Það getur verið eins einfalt og:

  • hætta með pappírsseðla og Excel-skjöl frá hverjum starfsmanni

  • hafa eitt sameiginlegt skjal/form

  • safna gögnum á einn stað í stað margra skilaleiða (póstur, Messenger, símtöl…)

Stöðlun getur sparað mikinn tíma.

3. Úthýsa þeim hluta sem er viðkvæmastur og tímafrekastur

Mörg fyrirtæki velja að halda eftir einhvers konar yfirsýn yfir vinnutíma og starfsfólk – en úthýsa:

  • útreikningi launa

  • skilagreinum

  • eftirliti með skilafrestum

  • bókunum í bókhald

Þannig er:

  • áhættan minni (sérfræðingur fylgist með reglum og breytingum)

  • tíminn þinn frjálsari

  • þú samt með stjórn á heildarmyndinni


Hvar kemur Aðalbókarinn inn?

Aðalbókarinn vinnur með eigendum og stjórnendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem eru komin með nóg af því að verja heilum dögum í laun og skilagreinar.

Við hjálpum þér að:

  • kortleggja hvernig tíminn fer í launavinnslu í dag

  • finna hvaða verkefni er skynsamlegt að úthýsa

  • setja upp einfalda ferla sem tryggja að laun, skil og uppgjör gangi áreynslulaust fyrir sig

Við tökum yfir tímafrek verkefni þar sem mistök geta kostað – svo þú getir varið meiri tíma í rekstur, fólk og tekjur.

Aðalbókarinn – sérfræðingurinn sem gefur þér tímann þinn aftur.

,

Umhugsunarefni þegar kemur að bókhaldi

Um daginn settum við inn spurningar á hópinn Íslenskir frumkvöðlar á Facebook og báðum fólk að senda okkur umhugsunarefni sín þegar kemur að bókhaldi.

Bókhaldskostnaður var mörgum hugleikinn og sjálfvirknivæðing bókhaldsins. Við ræddum þessi mál hér hjá Aðalbókaranum og fórum yfir hvernig okkar viðskiptavinir væru að vinna bókhaldið sitt.

Geymsla bókhaldsgagna
Allir rekstraraðilar bera ábyrgð á geymslu sinna bókhaldsgagna.  Hjá minni rekstraraðilum fáum við gögnin send til okkar hálfum mánuði fyrir vsk skil en mánaðarlega hjá þeim stærri. Við skönnum inn öll skjöl til að ekkert glatist eða afmáist út eins og vera vill með kvittanir úr söluposum. Fljótlegast er því fyrir okkur að fá gögnin skönnuð og send til okkar rafrænt – en skjölin sjálf þurfa að vera aðgengileg. Það er mismunandi hvort við geymum þau gögn eða viðskiptavinurinn.

Það sem viðskiptavinir þurfa að gera til að vinnan gangi hnökralaust fyrir sig er að gæta þess að öll gögn séu með. Passa upp á hverja nótu, hverja millifærslu og sölu. Það sem tefur bókarann er undantekningarlaust þegar gögn fylgja ekki með og því viljum við fá meiri gögn til okkar en minni.

Bókhaldskerfi
Við höfum þá trú að ekkert eitt bókhaldskerfi sé betra en annað. Þessi kerfi eru allt lausnir sem einhver er búinn að leggja hugsun og vinnu í og þjónar þeim sem það vilja. Ef kerfið hentar rekstrinum þá er það besta kerfið fyrir viðkomandi.  Góður bókari aðlagar sig að sínum viðskiptavini og Aðalbókarinn hefur í gegnum tíðina aðlagað sig að mörgum kerfum og þau virka öll.

Allir rekstraraðilar þurfa að hafa lágmarksskilning á bókhaldi, vita um hvað það snýst. Okkar starf er að gæta þess að það sé rétt fært, vera í sambandi við RSK og aðra opinbera aðila og senda inn á réttum tíma virðisaukaskattinn, skattaskýrslur og ársreikning svo fátt eitt sé nefnt.

Bókhaldskostnaður
Varðandi bókhaldskostnað þá gerir Aðalbókarinn ávallt fast verðtilboð í bókhaldsþjónustuna, við sendum aldrei aukareikninga fyrir að svara símtölum eða hitta okkar viðskiptavini. Það er okkur í hag að samskiptin séu góð, sameiginlegur skilningur sé á bókhaldinu og að viðskiptavinir gangi að okkur vísum.

Það er sjaldan sem bókhaldið reynist meira en í upphafi var áætlað og í þeim fáu tilfellum sem það hefur gerst, þá breytist verð þjónustunnar eftir fyrsta árið. Þangað til vinnum við samkvæmt verðsamningi og sjáum um að bókhaldið sé fært frá a-ö og öll gögn send hinu opinbera á réttum tíma. Við höfum sett saman yfirlit bókhaldseindaga ársins 2021 og sendum út til okkar viðskiptavina fljótlega.

Ef þú vilt heyra í okkur og kanna hvernig bókhaldsþjónusta Aðalbókarans gæti nýst þér þá smelltu hér og við svörum um leið og við lítum upp úr bókhaldinu.

,

Að útvista bókhaldið og spara

Það kemur mörgum á óvart hve mikið er hægt að spara með því að útvista bókhaldið. Þegar fyrirtæki komast á þann stað að bókhaldið er farið að taka meiri tíma frá grunnþáttum rekstursins fara þau að athuga með nýjan starfsmann eða að útvista bókhaldinu. Nýr starfsmaður þarf á þessum tímapunkti yfirleitt að bera nokkra hatta og nýtast því í fleiri verk en bókhaldið. Það getur reynst þrautinni þyngri. Sparnaðurinn felst því bæði í þjálfunarkostnaði starfsmanns og vinnuframlagi eigenda meðal annars. Því með útvistum getur hann/hún varið öllum sínum kröftum í reksturinn en ekki bókhaldið.

Fast verð og engir aukareikningar

Þegar þessir aðilar senda okkur fyrirspurn og átta sig á að hjá Aðalbókaranum er fast verð og engir aukareikningar (fyrir símtöl eða aðrar almennar fyrirspurnir) þá undantekningarlaust prufa þau þjónustu okkar í ár. Það hefur reynst mörgum gæfuspor því með þjónustu eins og Aðalbókarans fær rekstraraðilinn í raun heila bókhaldsdeild með margra ára þekkingu og reynslu í farteskinu.

Með þessu undirbýr fyrirtækið rekstur sinn til framtíðar þar sem gögn verða alltaf aðgengileg, rétt færð og skil á réttum tíma við hið opinbera. Það er ómetanlegt að geta gengið að þessu vísu hjá reyndum bókara og vitað að bókhaldið er alltaf rétt fært og í samræmi ár frá ári.

Nú þegar tími aðhalds er hafinn hjá fyrirtækjum er útvistun bókhalds ein af þeim betri ákvörðunum sem þau taka. Það sést strax í rekstrarkostnaði fyrirtækisins sem og léttir af eigendum og stjórnendum.

Við hvetjum ykkur að velta útvistun bókhaldsins fyrir ykkur – það gæti komið ánægjulega á óvart!
Sendið okkur fyrirspurn hér og við svörum um leið og við lítum upp úr bókhaldinu.

Bókhaldsþjónusta í hnotskurn

Bókhaldsþjónusta fyrir fyrirtæki á ekki bara að halda utan um fylgiskjöl og skil. Hún á að skapa reglusemi í upplýsingum, lækka álag í rekstri og gera stjórnendum kleift að sjá stöðuna áður en vandinn verður dýr. Þegar bókhaldið er fært reglulega og gögn berast á réttum tíma verður auðveldara að taka ákvarðanir um kostnað, verðlagningu, ráðningar og næstu skref í rekstrinum.

Góð bókhaldsþjónusta snýst þess vegna ekki um að færa tölur sem hraðast. Hún snýst um að vinna gögnin þannig að þau verði nýtileg. Rekstraraðili þarf að geta gengið að því vísu að laun séu unnin, skil fari rétt fram og yfirlit sé nægilega traust til að byggja á því daglegar ákvarðanir. Þar liggur raunverulegt virði bókhaldsins.

Bókhaldsþjónusta sem skilar yfirsýn

Þegar bókhaldið er í lagi verður reksturinn skýrari. Þá sést hraðar hvort kostnaður er að hækka, hvort innheimta er að tefjast eða hvort ákveðin verkefni bera sig einfaldlega ekki nógu vel. Það sparar ekki bara tíma heldur dregur líka úr hættunni á því að ákvarðanir séu teknar á tilfinningu í stað staðreynda.

Hitt gerist líka þegar bókhaldið situr á hakanum. Fylgiskjöl safnast upp, skýringar vantar á færslur og verkefni sem hefði átt að taka nokkrar mínútur verða að löngu uppgjöri síðar. Þá hækkar kostnaðurinn, ekki endilega vegna meira umfangs í rekstri heldur vegna óreiðu sem hefði mátt fyrirbyggja með einföldum og stöðugum verkferlum.

Fastur taktur dregur úr óvissu

Fyrirsjáanleiki skiptir máli í bókhaldi eins og í öðrum þáttum rekstrar. Rekstraraðili þarf að vita hvað þarf að skila, hvenær það þarf að gerast og hvernig gögn eiga að berast. Þegar þessi taktur er skýr minnkar álagið verulega, bæði hjá stjórnendum og starfsfólki. Þá verður bókhaldið ekki stöðugt neyðarverkefni heldur eðlilegur hluti af rekstrinum.

Sama á við um kostnaðinn. Skýr verðlagning og afmörkuð þjónusta skapa traust. Það er betra að vita fyrirfram hvað er innifalið, hvaða gögn þarf að afhenda og hvenær gera þarf ráð fyrir aukavinnu, en að lenda síðar í óljósum reikningum og eftirvinnu sem enginn sá fyrir. Bókhaldsþjónusta á að draga úr óvissu, ekki bæta við hana.

Ferlar sem létta reksturinn

Sterk bókhaldsþjónusta byggir á einföldum ferlum. Gögn þurfa að skila sér reglulega, bankahreyfingar að stemma, laun að fara í réttan farveg og skil til hins opinbera að fylgja ákveðnum takti. Þetta hljómar einfalt, og á einmitt að vera það. Þegar ferlarnir eru skýrir verður minna um tafir, færri leiðréttingar og minni tími fer í að leita að upplýsingum sem hefðu átt að vera aðgengilegar frá upphafi.

Þetta er líka ástæðan fyrir því að góð bókhaldsþjónusta styður stjórnun. Hún losar ekki bara um tíma hjá rekstraraðila heldur bætir gæði ákvarðana. Með reglulegu bókhaldi verður auðveldara að sjá þróunina í stað þess að reyna að skýra fortíðina undir tímapressu. Þá verður bókhaldið stjórntæki, ekki bara lögbundið hlutverk.

Niðurstaðan er einföld

Bókhaldsþjónusta sem virkar vel skilar meiri ró, skýrari yfirsýn og betri takti í rekstrinum. Hún hjálpar fyrirtækjum að halda utan um skyldur sínar, en enn mikilvægara er að hún býr til betri forsendur fyrir ákvörðunum. Það er munurinn á bókhaldi sem er bara afgreitt og bókhaldi sem styður reksturinn í framkvæmd.

Næsta skref: Farðu yfir hvort núverandi verkferlar í bókhaldinu skili þeirri yfirsýn og fyrirsjáanleika sem reksturinn þarf.

Ef spurningar vakna, sendu okkur fyrirspurn um bókhaldsþjónustu Aðalbókarans. Hver veit nema þú gætir nýtt þér þjónustuna og lækkað bókhaldskostnaðinn í leiðinni.

 

Hvernig bókara skal ráða?

Þegar þörf er á bókhaldsþjónustu kemur alltaf upp spurningin: hvernig bókara skal ráða? Margir fara í vini og vandamenn sem eru með slíka þjónustu og leita ráða því eins og segir í Hávamálum: En orðstír deyr aldregi hveim er getur séð góðan. Orðsporið gefur alltaf vissa mynd um hvernig viðskiptavinum líkar þjónustan. Það sem hinsvegar þarf að gæta að er að bókari X kann að vera óhentugur fyrirtæki Z og það geta verið margar ástæður fyrir því.

Við leit að bókara er gott að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Gefur bókarinn sér tíma í að svara fyrirspurnum?
  2. Sýnir hann skilning á rekstrinum?
  3. Stendur hann við orð sín?
  4. Er hann þægileg viðbót við þinn rekstur?
  5. Er verðlagið skýrt og gegnsætt?

Ef bókarinn er ekki að veita þér það öryggi og skilning sem þú óskar eftir þá er gott að spyrja sig hvort viðskiptasambandið henti. Aðalbókarinn hefur til að mynda í gegnum tíðina ekki getað tekið alla í viðskipti sem til hans leita því viðkomandi hefur einfaldlega ekki hentað þjónustunni og það er þakklátt að átta sig á því fyrr en seinna.

Hvernig bókara skal þá ráða?
Við hvetjum þig til að kanna þjónustu Aðalbókarans, við bjóðum upp á fast verð, enga aukareikninga og vel skilgreinda þjónustu.  Bókhald er ekki bara bókhald og öll bókhaldsþjónusta þarf alltaf að vera vel skilgreind. Við höfum lagt kapp á gegnsæji og sameiginlegan skilning viðskiptavina okkar. Það einfaldar okkur vinnuna og skapar traust, öruggt bókhald.

Sendu okkur fyrirspurn og við svörum um leið og við lítum upp úr bókhaldinu!

Bókari verður aldrei úreltur

Bókhald hefur alltaf verið meira en innsláttur talna og bókari verður aldrei úreltur. Þessa staðhæfingu stöndum við fyllilega við. Reyndur bókari, eins og Aðalbókarinn getur aðstoðað fyrirtæki með nákvæma yfirsýn yfir stöðu rekstursins. Það gefur því auga leið að góður bókari ætti að taka nýrri tækni fagnandi þar sem hún gefur honum meiri tíma til að hjálpa viðskiptavininum að skilja betur rekstrarstöðuna.

Á Íslandi flokkast flest fyrirtæki sem lítil og meðalstór fyrirtæki og öll þurfa þau á þjónustu bókara að halda svo bókhaldið sé rétt fært og gögnum skilað á tíma til hins opinbera. Sú skilvirkni sem verður með sjálfvirkri tækni og þjónustu þýðir að bókarinn getur þjónustað fleiri viðskiptavini en áður því tæknin eykur framleiðni bókara miklu frekar en að gera þá atvinnulausa.

Á meðan hlutverk bókarans breytist með nýrri tækni breytir það ekki hvernig hið opinbera lítur á starf hans, nauðsynlegan hluta af trúverðurleika og árangri fyrirtækja.

Bókhald framtíðarinnar.
Flest fyrirtæki þurfa á fagþekkingu bókara að halda svo bókhaldið sé rétt fært og gögnum skilað á tíma en bókhaldið er orðið svo miklu meira en innsláttur talna, afstemmingar og niðurstaða. Sá bókari sem aðlagar sig að nýjum veruleika mun blómstra í þessu nýja umhverfi ásamt viðskiptavinum sínum því bókarinn mun hafa meiri tíma til að veita verðmætrar upplýsingar um reksturinn.

Að færa gögn er ómissandi hluti af vinnu bókarans, sífelldar endurtekningar og er ekki sérlega spennandi framkvæmd í sjálfu sér. Sjálfvirkni á þessum þætti vinnunnar ætti því að vera gleðiefni því hún gefur bókaranum tækifæri á frekari úrvinnslu gagna sem aftur sýnir raunverulega sérfræðiþekkingu hans. Þegar tæknin tekur yfir meira af hinni venjubundnu vinnu bókarans getur hann nýtt sérfræðiþekkingu sína til að vinna betur úr lykiltölum viðskiptavinarins. Já bókari verður aldrei úreltur.

Aðalbókarinn vinnur náið með viðskiptavinum sínum. Smelltu hér og kannaðu málið hvernig þjónustan gæti hentað þér

Ætlar þú að eyða sumarfríinu í bókhald?

Einn allra óhagkvæmasti skiladagur vsk er í byrjun ágúst því vikurnar á undan eru flestir í sumarfríi og því ekki með hugann við bókhald og rekstur. Þetta er sá skiladagur vsk sem margir ýta á undan sér öllum undirbúningi bókhaldsins og hringja með engum fyrirvara til okkar með beiðni um aðstoð.

Hið fullkomna fyrirkomulag er að sjálfsögðu að senda inn bókhaldsgögnin áður en sumarfríið hefst og láta Aðalbókarann um að bóka og senda til skattsins. Þannig blasir við hreint borð að loknu sumarfríi.

Hitt fyrirkomulagið er að eftir gott sumarfrí, sé sest niður, reikningar flokkaðir og hugurinn gíraður í uppgjör síðustu mánaða í stað þess að einbeita sér að verkefnum haustsins og framlegð komandi mánaða.

Þitt er valið. Við fögnum öllum sem kjósa að vinna gögnin samhliða því það minnkar stress, eykur ánægju og fullkomnar fríið.

Við erum að bæta við okkur viðskiptavinum svo ef þú ert í vafa með bókhaldið, vsk skilin svo ekki sé nú minnst á skattaskýrsluna og árskýrsluna þá erum við til þjónustu reiðubúin.

Hafðu samband og njóttu síðan sumarsins áhyggjulaus og fullviss um að Aðalbókarann sé með þér í liði, bókhaldið fært og uppgjör tilbúin að því loknu.